Balboa
Grunnnámskeið í Balboa einnig þekkt sem Bal-Swing.
Farið verður yfir grunnspor Balboa og Bal-Swing. Bal er yfirleitt dansaður við hraðari tónlist, á bilinu 180 til 320 BPM. Að mestu leyti er dansað í uppréttri stöðu þar sem tengingin er við bringuna á dansfélaganum.
Námskeiðið er kennt í fimm 75 mínútna tímum í Dans og Jóga Hjartastöðinni, Skútuvogi 13a.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 12. október 2023 klukkan 19:30.
Verð 16.900 kr.
Athugið að lágmarksskráning þarf að nást svo að námskeiðið sé haldið.
Ekki þarf að koma með dansfélaga.
Í lindy hop skiptumst við á að dansa hvert við annað. Þannig fáum við fjölbreytta dansreynslu sem hjálpar okkur að læra og ná tökum á dansinum. Þar að auki er það skemmtileg leið fyrir nemendur til þess að kynnast og þjappar hópnum saman.
Það er þó fullkomlega í lagi að koma með dansfélaga og dansa einungis við hann eða hana á námskeiðunum.
Skráning
Small Wonders ehf.
kt. 701118-0220
Ásvallagata 1, 101 Reykjavík
Tölvupóstur
sveiflustodin@gmail.com